Albert Gunnar Arnarson
Ég treysti Höllu fullkomlega.
Birta Kaldal
Halla er mín kona.
Vigdís Jóhannsdóttir
Halla er reynslumikil, hjartahlý og hörkutól sem mun vera landi og þjóð til sóma.
Gunnar Ingi Reykjalín Sveinsson
Ég styð Höllu!
Gunnar Jóhannsson
Ég styð Höllu!
Þórunn Einarsdóttir
Halla fyrir mig, ekki láta halla á mig.
Hilmar Þór Elíasson
Ég styð Höllu í embætti forseta Íslands.
Jón Björnsson
Mig langar að hafa forseta sem er sannur leiðtogi og hefur kraft til að breyta hlutunum í gegnum góð gildi. Það er Halla.
Þráinn Farestveit
Halla Tómasdóttir hefur að bera víðsýni og mikla og góða tilfinningu fyrir mannlegum gildum. Halla er einstaklega hlý og kærleiksrík. Halla fær minn stuðning.
Freyja Þórisdóttir
Ég hef þekkt Höllu frá því að ég var lítil og fékk þann heiður að vaxa úr grasi með hana sem eina mína nánustu fyrirmynd. Hún er réttsýn og útsjónarsöm en ég þekki fáa sem ég treysti frekar til að gegna embætti forseta Íslands. Halla leggur áherslu á mikilvægi kvenréttinda og jafnréttis fyrir alla. Ég ætla án efa að kjósa Höllu og hvet aðra til að gera eins.
Huld Konráðsdóttir
Halla hefur til að bera alla þá kosti sem prýtt gætu forseta Íslands.
Ester Höskuldsdóttir
Halla er með reynsluna, hugrekkið, heiðarleikann og tengslanetið sem þarf á Bessastaði. Hún er hugmyndarík, jákvæð og skapandi manneskja sem hefur frábært lag á að virkja sköpunargáfu fólks í kringum sig til dirfsku og framfara. Ég bara treysti Höllu!
Kristmann Magnússon
Halla er afburða gáfuð, glögg og skýr kona.
Heiða Óladóttir
Áfram Halla.
Katrín Jónsdóttir
Halla hugsar um heilsu fólks og samfélagsins, þannig forseta vil ég.
Gunnhildur Peiser
Halla er með reynsluna og tengslanetið sem þarf á Bessastaði.
Kolbrún Hrund Víðisdóttir
Kjarnakonan Halla Tómasdóttir fær mitt atkvæði
Svava Kristinsdóttir
Halla, leiðarljós Íslands á Bessastöðum
Agnes Gunnarsdóttir
Ég treysti Höllu til góðra verka.
Jóhann Birgisson
Halla á Bessastaði!
Andri Heiðar Kristinsson
Halla er mögnuð kona sem yrði landi og þjóð til mikils sóma sem næsti forseti Íslands!
Arnar Halldórsson
Enginn vafi. Halla er minn forseti.
Einar Birgir Kristjánsson
Ég styð Höllu.
Ívar Örn Hansen
Ég styð Höllu.
Karl Sigfússon
Halla er vel menntuð með öflugt alþjóðlegt tengslanet. Þegar ég horfi á hana sé ég leiðtoga sem virkjar hugrekki og hugvit okkar allra til góðs, heima og að heiman.
Jensína Kristín Böðvarsdóttir
Höllu hef ég þekkt í rúmlega 25 ár og hef ég fylgst með henni og hennar störfum í gegnum tíðina. Hún er einstaklega öflugur leiðtogi sem býr yfir persónutöfrum, góðri nærveru, metnaði og krafti. Ég treysti engum betur en Höllu til að verða næsti forseti okkar.
Erna Baldursdottir
Sterk, hrífandi gefandi og það sem skiptir máli hún er KONA, hjá þjóð sem er þekkt um allan heim sem öflugur boðberi jafnréttis, þurfum við á henni að halda. Hún er bara einfaldlega rétta konan fyrir okkur sem elskar landið sitt og ber mikla virðingu fyrir því.
Hilda og Jóna
Við styðjum Höllu í embætti forseta Íslands.
Einvarður Jóhannsson
Ég styð Höllu!
Ragna Gunnur Þórisdóttir
Ég styð Höllu
Aron Gauti Óskarsson
Björt framtíð með Höllu sem forseta!
Elna Ólöf Guðjónsdóttir
Halla býr yfir einstakri hlýju og hefur raunverulegan áhuga á fólki. Ég treysti henni til að sameina þjóðina um forseta sem við getum öll verið stolt af.
Kristjana Ýr Herbertsdóttir
Halla er hugrökk, framsýn og drífandi. Hún býr yfir öllum þeim eiginleikum sem þarf til þess að vera sá forseti sem mun sameina þjóðina og verða okkur öllum til sóma.
Safa Jemai
Ég styð Höllu.
Bára Kristinsdóttir
Halla vill leggja málefnum eins og jafnrétti og loftslagsmálum lið og hún hefur orku og getu til þess. Ég vil forseta sem hefur rödd og nýtir hana til brýnna verka og skilar í senn okkar landi og þjóð sóma.
Sigrún Helga Sveinsdóttir
Ég er að springa úr spennu. Hafið þið hlustað á hana Höllu tala!!!! Áður en þið ákveðið hvert atkvæði ykkar fer þá hvet ég ykkur til að hlusta á þessa mögnuðu konu. Hún fær mitt atkvæði og vonandi þitt líka!
Daníel Örn Hinriksson
Ég styð Höllu!
Hafþór Skúlason
Ég elska íslenska náttúru. Ég veit líka eftir að hafa fylgst með Höllu á alþjóðlegum vettvangi að hún elskar íslenska náttúru. Við gætum ekki fengið betri manneskju til að vera fulltrúi okkar. Ég styð Höllu til embættis forseta Íslands.
Jóhanna Valdimarsdóttir
Halla brennur fyrir því að taka þátt, gera gagn og láta gott af sér leiða. Ég treysti Höllu og er alveg viss um að hún yrði frábær forseti.
Ragnhildur Ágústsdóttir
Halla Tómasdóttir er ekki bara heiðarleg, hugrökk og öflug kona með góð og rétt gildi heldur hefur hún að baki stórkostlegan feril þar sem hún hefur sýnt og sannað að hún lætur verkin tala. Ég treysti engum betur til að verða forseti Íslands.
Brynja Andreassen
Halla er flott og frambærileg kona sem hefur mikla útgeislun, er vel menntuð með öflugt alþjóðlegt tengslanet. Hún er hugrökk, hlý og heiðarleg og hefur einstaka reynslu af því að leiða fólk saman til jákvæðra framfara. Hún mun taka utanum þjóðina, virkja visku hennar, hugrekki og sköpunargáfu til þess að gera gagn og láta gott af sér leiða.
Linda Fanney Valgeirsdóttir
Ég styð Höllu af því að hún hefur afburða leiðtogafærni auk þess að hafa dýrmæta innsýn og tengingar í alþjóðasamfélagið. Hún brennur fyrir því að bæta samfélagið og leysa úr læðingi krafta fólks í landinu. Halla er fyrirmynd og mitt fyrsta val.
Sigurjóna Sverrisdóttir
Ísland í huga mínum stendur fyrir samfélag sem stefnir að því að tryggja öruggari, umhverfisvænni og sanngjarnari framtíð okkar allra. Það hefur Halla verið að vinna að undanfarin ár á alþjóðavísu. Þess vegna kýs ég Höllu, hún hefur sýnt í verki hvað hún stendur fyrir.
Gullveig Teresa Sæmundsdóttir
Halla þekkir af störfum sínum mikilvægi þess að leiðtogar nýti tækifæri sem þeim gefast til þess að láta gott af sér leiða. Halla mun hafa velferð lands og þjóðar að leiðarljósi í störfum sínum sem forseti Íslands.
Auður Björk Guðmundsdóttir
Halla hefur sýnt það og sannað í sínum störfum að í henni býr öflugur leiðtogi. Hún er kraftmikil, hugrökk, eldklár og hjartahlý. Halla yrði frábær forseti; forseti sem mun fylla þjóð sína stolti í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur.
Gunnur Helgadóttir
Halla er framúrskarandi leiðtogi og hefur lengi verið mín fyrirmynd. Sem forseti yrði hún okkur til sóma bæði innanlands sem utan. Halla hefur líka einstakan hæfileika til að ná til og hlusta á sjónarmið allra kynslóða og skilur að fjölbreytileikinn gerir okkur sterkari saman.
Guðmundur Reynaldsson
Höllum okkur að Höllu, kemur ekkert annað til greina.
Ragnheiður Aradóttir
Ég kýs Höllu Tómadóttur af því að ég er viss um að hún sé með hina fullkomnu reynslu og bakgrunn til að vinna að jafnréttis- , umhverfis- og auðlindarmálum með atvinnulífinu - okkur öllum til heilla.
Pálmi Ingólfsson
Halla er heiðarleg, hugrökk og hlý. Hún mun taka utanum þjóðina, virkja visku hennar og sköpunargáfu til þess að gera gagn og láta gott af sér leiða. Svo er ekki verra að maðurinn hennar er frá Grindavík!
Ástrós Birta Birgisdóttir
Halla á eftir að vera frábær forseti, ég bara veit það!
Svanfríður Þórðardóttir
Ég hef dáðst að Höllu Tómasdóttir fyrir fágaða framkomu, hlýleika og víðsýni. Er sannfærð um að hún verður frábær forseti sem þjóðin getur verið stolt af sem fulltrúa sínum. Hún er minn forseti.
Ólöf Salmon Guðmundsdóttir
Halla Tómasdóttir fær mitt atkvæði vegna hennar mörgu góðu mannkosta og leiðtogahæfileika. Ég treysti henni fullkomlega til að halda utan um íslensku þjóðina og einnig að stuðla að því að auka farsæla vegferð okkar með alþjóðasamfélaginu. Kjósum forseta sem við munum vera stolt af.
Bjarki Sigfússon
Já takk!
Þorbjörg Helgadóttir
Ég vil öfluga konu á Bessastaði. Halla Tómasdóttir fær allan minn stuðning.
Rakel Hrund Ágústsdóttir
Halla hefur sýnt og sannað með verkum sínum að hún er kraftmikil og réttsýn kona. Störf hennar hafa byggt á heiðarleika, réttlæti, jafnrétti og virðingu. Þannig forseta vil ég fá.
Birna Ósk Einarsdóttir
Ég styð Höllu heilshugar í embætti forseta Íslands. Hugrökk, jákvæð og kraftmikil með ómældan metnað fyrir Íslands hönd.
Hjördís Magnúsdóttir
Halla er einstaklega hlý manneskja og hefur lag á að virkja fólk til góðra verka.
Tjörvi Guðjónsson
Ég treysti Höllu til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Hún yrði frábær forseti.
Þjóðhildur Þórðardóttir
Halla er jákvæð, drífandi og dugleg. Hún er frábær leiðtogi sem ég treysti til góðra verka.
Hjörtur Aðalsteinsson
Ég styð Höllu vegna þess að við þurfum heimsborgara í samstæðum sokkum sem getur fært okkur alþjóðleg tækifæri eins og Ólafur Ragnar gerði með stæl enda á Ísland að vera land nr. 1 í heiminum.