Brúarsmíði á Bessastöðum
Ég ber mikla virðingu fyrir brúarsmiðum, þessu magnaða handverksfólki sem hefur frá örófi alda aukið öryggi samborgara sinna og stytt vegalengdir milli áfangastaða. En ég ber líka ómælda virðingu fyrir fólki sem hefur helgað líf sitt brúarsmíði milli kynslóða og þjóðfélagshópa. Í Þetta helst að þessu sinni fjalla ég um kynslóðajafnrétti og tæpi síðan á opnun kosningaskrifstofu í Ármúla 13 á laugardag klukkan 14 og heimsókn upp á Akranes á mánudag með opnu húsi klukkan 18.
View
Hugrekki er ákvörðun
Í Helstinu að þessu sinni ræði ég hvernig hugrekki getur verið val og hversu mikilvægt það er að Ísland taki ákvörðun um að vera til fyrirmyndar í heimi sem leitar lausna hvað snertir frið, jafnrétti og sjálfbærni, enda fylgi því margvísleg sóknarfæri til verðmætasköpunar og jákvæðrar framþróunar fyrir íslenskt samfélag. Einnig kem ég inn á nauðsyn þess að rækta virkt samtal og samstarf á milli kynslóða um það hvers konar samfélagi við viljum búa í og skapa fyrir framtíðina. Dætur og synir Íslands áttu hug og hjörtu okkar Bjössa í vikunni og dagarnir voru sömuleiðis litaðir af fundahöldum og viðburðum, að ógleymdum heimsóknum í nokkur hlaðvörp!
View
Vestfirðir, B Team og hlaðvörpin
Við Bjössi verðum ásamt frændfólki á ferðinni um Vestfirði núna um páskana og ég vil endilega hvetja öll sem geta til að hitta okkur á þremur viðburðum. Ég hlakka til að heimsækja tónlistarhátíðina “Aldrei fór ég suður”. Fyrst hittum við þó fólkið okkar. Vikan var annars lífleg og ég mætti í þrjú hlaðvörp og eitt viðtal að auki hjá Samstöðinni, sem var tekið upp með hljóði og mynd. Í tveimur molum segi ég einnig stuttlega frá starfsemi B Team og minnist ársins hjá Viðskiptaráði.
View